Find Us Online At
iBookstore
Android app on Google Play
Like Us
A programme by
Skærar stjörnur á dimmum himni
6 December 2012

Ljós hjálpar okkur oftast að sjá hluti en þegar við horfum upp í næturhimininn byrgir ljósið okkur stundum sýn. Götu- og bílljós skemma útsýni okkar á stjörnurnar, reikistjörnur og jafnvel Vetrarbrautina okkar. Á heiðskíru kvöldi ættir þú að geta séð um 2.500 stjörnur með berum augum en ef þú býrð í borg eða bæ sérðu líklega frekar fáar stjörnur á kvöldin!

Þessi glæsilega stjörnuljósmynd sýnir skínandi stjörnuþyrpingu og litríkt gasský sem kallast Kjalarþokan. Kjalarþokan er risavaxið svæði úr gasi, ryki og stjörnum í Vetrarbrautinni okkar. Ef þú byggir á suðurhveli jarðar sæirðu þetta risaský á næturhimninum, jafnvel án stjörnusjónauka, þó vitaskuld væri það ekki svona litríkt. En eins og við á um svo mörg önnur undur alheimsins sést Kjalarþokan vart lengur úr borgum og bæjum vegna ljósmengunar.

Sem betur fer hafa stjörnufræðingar komið sér upp stórum og öflugum sjónaukum til að skyggnast djúpt inn í alheiminn og ná myndum eins og þessari. Myndin var tekin með stórum sjónauka í miðri eyðimörk í Chile, langt frá allri ljósmengun. Á myndinni sjást mörg ótrúlega falleg smáatriði í Kjalarþokunni, svo sem dökkir rykstólpar sem kljúfa glóandi gasský og þyrpingar ungra stjarna.

Fróðleg staðreynd

Árið 2012 var slökkt á ljósunum í mörg þúsund borgum um allan heim í eina klukkustund til að minna fólk á mikilvægi þess að vernda reikistjörnuna okkar. Meira að segja geimfararnir í Alþjóðlegu geimstöðinni tóku þátt! Ef þú vilt halda næturhimninum dimmum og stjörnunum björtum skaltu kíkja á Dark Skies Awareness og sjá hvernig þú getur hjálpað til.

More information

 Þessi Space Scoop frétt er byggð á fréttatilkynningu ESO.

Share:

More news
12 October 2020
1 October 2020
16 September 2020
14 September 2020
10 September 2020

Images

Dark Skies Show Bright Stars
Dark Skies Show Bright Stars

Printer-friendly

PDF File
1.1 MB